25.4.2008 | 10:53
Frekar undarlegt...
Getur einhver útskýrt fyrir mér hvað þessir trukkabílstjórar eru að gera? Ég er algjörlega hætt að skilja þessa atburðarás, afhverju eru þeir að ráðast á lögregluna? Ég hefði haldið að það ætti frekar að blokka innkeyrslur forstjóra olíufélaganna í stað þess að hrella ríkisstjórnina. Vita þeir eitthvað hvað þeir eru að gera? Er það ekki samráð olíufélaganna sem gera bensínverðið svona fáránlegt (fyrir utan heimsmarkaðsverðið)? Hmmm eða er ég bara orðin kolrugluð? Það væri fínt ef einhver útskýrði fyrir mér hvað þeir vilja eiginlega að ríkisstjórnin geri, því skattur á eldsneyti er ekki mikill.
Hins vegar er ég frekar fúl yfir því að olíufélögin fengu ekki meiri refsingu fyrir samráð. Það getur enginn sannfært mig um það að þau stundi ekki samráð nú. Ég er algjörlega hætt að versla á bensínstöðvunum, bæði mat og bensín. Ég tek alltaf bensín í Atlas olíu, og finnst að þið ættuð öll að gera slíkt hið sama
Myndum samráð gegn samráði 
Gleðilegt sumar allir!
Reni á Þjóðarbókhlöðunni 
|
Sturla: „Ekki á okkar ábyrgð" |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.4.2008 | 22:14
Bara smá pælingar varðandi Símann..
Hvað var síminn (eða öllu heldur markaðsdeild símans) að spá þegar hann ákvað að gera Egil "gillz" að andliti símans? Maður sem fyrirlítur femínista, segir að þær þurfi að bara að fá sér alminninlega að ríða. Maður sem notar orðalag eins og að aftappa ungar stelpur og þess háttar. Þetta er nýja andlit símans, sem með þessu segir ekki aðeins að svona framkoma sé í lagi heldur beinlínis ýtir undir hana. Þetta er kúl!
Æ ég fór bara að velta þessu fyrir mér og er nú alvarlega að hugsa um að fara að skipta yfir í SKO. Finnst þetta lélegt.
Góða nótt allir - Reni í prófatörn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.4.2008 | 18:25
Mér er alveg sama!!
Ég skal bara láta ykkur vita það að mér er alveg sama um REI! Ég veit varla hvað það er (er samt algjörlega sammála því að Reykjavíkurborg eigi ekki að stunda áhættufjárfestingar) og ég nenni ekki að hlusta á þetta pólitíska þvaður lengur.
Mér er hins vegar ekki sama um borgina. Ég er mjög kunnug í miðbæ Reykjavíkur og mér finnst ótrúlega sorglegt að sjá miðbæinn grotna niður og missa sjarma sinn. Endilega takið eftir þessu næst þegar þið kíkið í miðbæinn, ef það er ekki veggjakrot þá er það niðurnýsla. Ekki láta mig byrja á skuggablokkunum sem skyggja algjörlega á útsýni borgarbúa yfir Flóann. Svo er einnig frábær hugmynd eða þannig að planta hverri stofnuninni af annarri í vatnsmýrina og endilega setjum eitt stykki Háskóla í Nauthólsvíkina, okkar helsta útivistarsvæði og stuðlum að því að umferðin verði meiri hryllingur en hún er nú þegar. Hver stjórnar þessu eiginlega?
Kæru borgarfulltrúar vinsamlegast hættið þessu rugli, hættið að nöldra um REI og einbeitið ykkur að hlutum sem skipta máli. Vinnið vinnu ykkar, það er það eina sem ég bið um.
Ein með miklar áhyggjur af framtíð Reykjavíkur.
Vildi bæta því við að rétt í þessu var fjallað um það, í fréttum stöðvar tvö, að eitt ár er liðið frá brunanum í miðbænum og enn hefur ekkert verið gert.
|
Ekki boðlegt borgarbúum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.3.2008 | 09:13
Kemur á óvart?
Já ég skil mjög vel að þeir séu hneykslaðir. Og hissa. Ofbeldismenn sleppa? Í alvöru?! ...
...En er þetta ekki alltaf að gerast??
Lítið hefur verið dæmt í nauðgunarmálum og ofbeldismálum í gegnum tíðina.
Ég er allavega ekkert hissa.
|
Kurr í lögreglumönnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.3.2008 | 20:37
Ég vil..
tileinka þessu bloggi konum. Já, ekki hætta að lesa því ég hef svolítið merkilegt að segja. Í kvöld hef ég ákveðið, nei ekki ákveðið, heldur fundið, að ég er feministi. Ég er hætt að segja bull eins og að öfgakonur hafi komi óorði á feminista og það sé nú neikvætt orð. Bríet Bjarnhéðinsdóttir var öfgakona á sínum tíma. Ég finn nú að ég þarf ekki aðeins að berjast fyrir sjálfri mér hvað varðar jafnrétti, heldur þarf ég að hífa fjölda kvenna með mér. Það er þung byrgði. Ég get líka verið hreinskilin og sagt að ég persónulega þarf ekki á öðrum konum að halda og að ég sé full fær um að berjast fyrir launum mínum sjálf og mun því hafa jákvæð áhrif á meðallaun og meðalgildi launa kvenna. En hvað er eiginlega að konum? Af hverju stöndum við ekki saman? Er jafrétti svona fáránlegt?
Ég er í verkfræði. Var semsagt að koma úr vísindaferð, þar sem deildin fór og heimsótti KB banka. Í rútunni á leiðinni í bæinn var, eins og vanalega, sungið um hana jórunni, hóru sem vill láta ríða sér í rassgatið o.s.frv. og svo, eftir nokkur skipti var tekið annað lag um stelpu sem var vangefin. Hef of mikla sjálfsvirðingu til að hafa það eftir. Nei þeir sungu ekki, öskruðu frekar ógeðslegum röddum, og sumar stelpurnar tóku undir, aðrar gerðu ekkert. Síðustu vikurnar hef ég verið að leita eftir viðbrögðum í verkfræðinni þegar ég segi stelpunum að launamunur kynjanna var 100 þús meðal verkfræðinga árið 2006 en fæ lítil sem engin. Þess vegna segi ég: DRULLIST Á FÆTUR ALLAR SAMAN OG BERJIST FYRIR JAFNRÉTTI HVAÐ SEM ÞAÐ ER KALLAÐ, HÆTTIÐI AÐ LÁTA AÐRAR KONUR BERJAST FYRIR YKKUR.
Það fer ekkert eins mikið í taugarnar á mér og konur sem hugsa um ekkert annað en að sleikja upp karlmenn og þrá ekkert heitar en að láta þá líka vel við sig.
Ástæðan fyrir þvi að ég tengi þetta blogg við þessa frétt er vegna þess að eg þoli ekki þegar fólk talar um að við, konur, höfum það betra en konur annars staðar á hnettinum. Jafnréttisbarátta er ekki staðbundin. Því stærri sigra sem við vinnum hér því meira riðjum við brautina fyrir konur annars staðar.
Ég vil á endanum tala um niðrandi uppnefni kvenna eins og hóra, mella, píka o.s.frv. sem ekki eiga sér hliðstæðu í karlkyni. Og ekki einu sinni reyna að segja að sömu orð séu notuð í sömu merkingu um karlmenn.
Að auki er ég stelpa í góðu sambandi við góðan strák, sem að betur fer öskrar ekki um hóruna Jórunni (þrátt fyrir að konur væru algjörlega teknar úr laginu væri ég samt sem áður of vel upp alin fyrir þetta lag!!) og er ekki leiðinleg trukkalessa eins og Þórhildur Elín Elínardóttir líkir feministum við í fréttablaðinu 5. mars.
|
54 féllu í Bagdad |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.12.2007 | 11:42
Ekki í rétta átt
Ég vann í fatabúð í fullu starfi frá júlí 2003 og út það ár og í hlutastarfi í u.þ.b. 2 ár eftir það. Á öllum mínum starfsferli varð ég ekkert vör við það að samstarfsmenn mínir væru að stela (auðvita væru þeir ekki að hafa hátt um það) en kerfið var á þann hátt að það var mjög erfitt. Við fengum háan afslátt af vörum og starfsmenn skrifuðu á sig daglega. Ég get með engu móti séð hvernig við hefðum átt að fara að því að stela þar sem mikið var að gera í okkar vinnu og þar að auki var maður aldrei einn. Fyrir utan það voru þetta æðislegir krakkar, flestir að vinna með skóla eða á leið í skóla og ég get ekki með nokkru móti séð hvað þetta fólk mundi græða á því að stela, en tapið yrði hinsvegar mikið ef það kæmist upp um þau. Nei þessu trúi ég ekki. Ekki séns. En það var hinsvegar mikið um það að fólk rifi af þjófavarnir og stundum fann maður gomsu af þessu í mátunarklefunum. Ég get ekki með nokkru móti séð að ég eða samstarfsmenn mínir áttum að ná að stela jafnmiklu og allir viðskiptavinir fatabúðarinnar.
Ég skal samt segja ykkur hver er að stela. Yfir allt mitt tímabil í vinnu í fatabúðinni vantaði í heild 100 þúsund krónur í laun. Það var eftir að ég hafði farið hver einustu mánaðarmót niður á skrifstofu að leiðrétta launaseðilinn því ég fékk undantekningarlaust of lítið útborgað. Dregið var af mér kaffihlé sem miðast við fimm mínútur á hvern klukkutíma og á að vera greitt. Fyrir utan það hafði mér líka verið lofað því að þessi kaffipása væri á launum, annars hefði ég varla verið að spranga um í smáralind 20 mín á dag. Ég fór með launaseðlana til VR og þeir reiknuðu það út að það vantaði 100 þúsund krónur í laun yfir allt tímabilið en þar sem ég væri yfir lágmarkslaunum þá gæti ég ekki krafist þessara peninga, best væri að gleyma þessu bara. Nú svo ef maður er ekki á lágmarkslaunum (ég hef kannski verið 50 krónur yfir) þá má svindla á manni?? FÁRÁNLEGT!! Þetta þýðir að ég var á lágmarkslaunum án þess að vita af því. Hvað sem ég reyndi að biðja þá um aðstoð þá voru þeir ekki til í að veita mér hana. Takk VR, þetta er æðislegt stéttafélag... eða þannig. Þeir sögðu mér hinsvegar að fara bara til eigendanna og biðja um þessi laun. Ég, þá 18 ára, var skíthrædd við þá enda þeir hundfúlir yfir því að ég skildi leita til VR. Ég þorði ekki.
Betra væri að einbeita sér að réttindum starfsmanna búðanna en að gefa eigendum enn frekari rétt á að vera súper paranojaðir!
|
Starfsfólk stelur helmingnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 17.1.2008 kl. 03:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2007 | 19:53
Geldur verkfræðinemi á flótta
Ég sit hérna núna því ég er flóttamaður. Flóttamaður frá hámenningu. Frændi minn Pétur var að gefa út bók og mér var boðið í útgáfupartí á Solon. Ég er svakalega stolt af stóra frænda. Þetta var æðislegt boð, kerti út um allt, djassband sem samanstóð af þrem ungum strákum og bókin listaverk. Það var líka gaman að hlusta á hann lesa. Ég held ég hafi aldrei séð marga listamenn samankomna á einum stað.
Samt sem áður hefur mér aldrei fundist ég passa jafn illa innan um hóp fólks. Þarna voru allir svo fallegir og hæfileikaríkir og ég hálf skammaðist mín að vera verkfræðinemi. Var jafnvel farin að hugsa um að segjast vera blaðamaður sem fer til stríðshrjáðra landa og tekur myndir af fátækum börnum til að vekja athygli þeirra í hinum vestræna heimi. Ég var ekki nógu snögg. Amma var búin að segja Guðrúnu Helga að ég væri í efnaverkfræði: ,,Geturuðu ímyndað þér?!!!" Svo sneri hún sér að mér: ,,Renata ég banna þér að læra í kvöld!" Það er fínt, þá get ég bloggað :) Ég er reyndar í iðnaðarverkfræði ef einhver veit muninn, en það er sama, verkfræði er verkfræði. Ólíkt Guðrúnu þóttust leikstjórinn og myndlistamaðurinn hafa áhuga, þá var Guðrún skárri.
Hvað segir maður annars við Guðrúnu Helga? ,,Hæ, he he, ég hef lesið bækurnar þínar". Sjitt þetta er akkúrat það sem ég átti að segja, er það ekki? Ég allavega sagði það ekki. Svo var ég send að ná í sjerrí handa henni og rauðvín handa ömmu fyrst ég hafði ekkert merkilegt að segja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2007 | 20:24
Bjór er ekki mjólk
Ég er algjörlega sammála Velferðarráði Reykjavíkurborgar. Við Íslendingar höfum ekkert með það að gera að auka aðgengi að áfengi, né gera það ódýrara.
Hvað verður líka með afgreiðslustörfin? Verður þá ekki allt starfsfólk hagkaupa og annarra matvöruverlsanna að vera eldri en 18 ára? Það mundi nú skapa svolítið vandamál. Það yrði fráleitt að lækka þann aldur og leyfa of ungu fólki að afgreiða jafnaldra sína áfengi.
En burt séð frá því gera Íslendingar sér ekki alveg grein fyrir því að bjór er ekki mjólk. Ég þar á meðal, það viðurkenni ég fúslega. Ég geri mér líka fyllilega grein fyrir því að ef hægt verður að kaupa áfengi á lægra verði (ef það verður raunin sem alls ekki er víst) og grípa það bara sí svona þegar stokkið er út í búð að kaupa skyr og brauð þá mun fólk kaupa það töluvert oftar en það gerir nú. Að halda öðru fram er bara barnalegt. Nei áfengi er engin venjuleg vara. Aðgát skal höfð í nærveru áfengis. Ef Einar Ben hefði nú áttað sig á því væri Ísland örugglega öðruvísi í dag og lífgæði hans og hans nánustu hefðu orðið mun betri.
Stóra spurningin er sú hvort þessi þjóð megi við því að auka áfengisneyslu. Er ekki nógu mikið neysluþjóðfélag á Íslandi nú þegar? Ég get með góðri samvisku fullyrt það að meirihluti minna nánustu vina á forleldri, annað eða bæði, sem má alls ekki við þessari breytingu. Svo eru enn fleiri sem mega helst ekki við þessari breytingu og svo framvegis.
Nei erum við ekki bara búin að venja okkur á það að fara í ríkið og kaupa þar takmarkað af áfengi þegar sérstaklega stendur á? Töpum við ekki meira á þessari lagabreytingu en við græðum?
|
Velferðarráð leggst gegn frumvarpi um aukið frelsi í áfengissölu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.10.2007 | 23:00
Óskarinn í ár hlýtur:
"Hvernig finnst þér friðarsúlan?" "Mér?" "Já, hvernig finnst þér hún?" "Fín bara, mér finnst hún bara vera svolítið veik, mætti sjást betur."
Það er kannski ekkert skrítið að friðarsúlan sé veik, enda ekki friður í heiminum, World Peace, ekki einu sinni hérna á Íslandi. Þetta er búin að vera undarleg vika. Auðvitað talar fólk ekki um annað en tilþrif borgastrjórnarinnar. Já þau eru glæsileg. Ég vil endilega að allir rísi úr sætum og hrópi þrefalt húrra fyrir þessum frábæru tilþrifum. Orðið á götunni er að þau séu orðuð við Óskarinn á næsta ári. Ég bíð bara spennt.
Ég er reyndar alveg ótrúlega hneyksluð á þessu öllu saman. Hvað halda þau að þau séu. Já mér finnst þau allavega ekki vera virðingafullir stjórnmálamenn, svo mikið er víst. Ég hef ekki ennþá myndað mér skoðun, ákveðið hvaða flokki ég tilheyri, en þarna fengu sjálfstæðismenn stig, eða ætti ég frekar að segja að allir hinir flokkarnir drógu frá sér stig (nema framsóknarflokurinn, hann var aldrei með í spilinu). Ég skal útskýra þetta nánar:
Lélegasti leikstjórinn: Í fyrstu þegar ég frétti að meirihlutinn væri sprunginn hugsaði ég með mér: "þarna varð Vilhjálmi á, hann er nú meiri trúðurinn, hefði frekar átt að segja af sér en að klúðra málunum svona". En þegar ég kynnti mér málið nánar er það algjörlega fáránlegt að vera með svoleiðis fullyrðingar. Ég var reyndar aldrei neitt sérstaklega hrifin af Vilhjálmi og það er nokkuð ljóst að hann stóð sig ekki mjög vel í þessu starfi. Stjórnaði greinilega ekki nógu vel. En hann var reiðubúin að bakka þegar Gísli og co. benntu honum á að honum hefði orðið á og gekk hann í það að leiðrétta málin. Það verður samt að segjast eins og er að Hanna Birna hefði frekar átt að verða borgastóri.
Versti leikur í aðalhlutverki: Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja með hann Björn Inga. Undirstrikaði bara það sem mér finnst um framsóknarmenn. Alveg ótrúlegir. Það er kannski rétt þegar fólk segir að stjálfstæðismenn hafi sofnað á verðinum (ég veit ekki alveg hvernig þetta virkar en ég hefði haldið að þegar búið væri að mynda borgarstjórn þá þyrfti ekki að vera stöðugt á verðinum um samstarfsflokkinn) en það er greinilegt að þegar mynduð er stjórn með framsóknarmanni þá þarf alltaf að vera vel vakandi. Fór einmitt að hugsa út í það að hjón færu að rífast um hvenær selja ætti bílinn sem endaði þannig að konan fengi skilnaðarplagg með póstinum. Hlutirnir ganga ekki þannig fyrir sig. Svo er það klárt mál að Björn hafði miklu meiri völd, einn með Sjálfstæðismönnum, en með þessum (bíðiði ég þarf aðeins að telja....) þrem flokkum.
Verðlaunin fyrir mestu vonbrigðin hlýtur Svandís. Mér fannst hún vera svo flott en það að hún skuli vera tilbúin að gleypa allt fyrir það eitt að fá völd þykir mér sorglegt og alls ekki í anda Vinstri Grænna. "Ég stend við mína sannfæringu" er setning sem ég er búin að heyra allt of oft í vikunni og fæ yfirleitt hroll þegar ég heyri þessa glæsilegu stjórnmálaleikara fara með hana en sú eina sem hefur ekki getað farið með hana, og akkúrat sú sem ég vildi heyra línuna frá er Svandís. Þetta er í fyrsta skipti sem ég finn ekki fyrir stolts í garð vinstri grænna.
Mesti aukaleikari sem nokkurntíma hefur hlotið óskarinn: Margrét Sverrisdóttir
Dagur: ha hvaða dagur? happadagur?
Bottom line: Sjálfstæðisflokkurinn var kominn á rétta braut þegar ákveðið var að selja Reykjavík Energy invest sem fyrst. Ríkið á ekki að vera í áhættufjárfestingum með almannafé, þó svo að líkurnar sé okkur svo hrikalega mikið í vil. Ríkið á heldur ekki að taka þátt í útrás erlendis með hörðum viðskiptajöfrum sem svífast einskis og reka fólk eftir hentisemi. Vilhjálmi varð á og leiðrétti mistök sín en Reykjavíkurbúar virðast sammála um að stjórnmálaferli hans sé lokið. Hins vegar eru framsóknarmenn að sjáflsögðu hrikalega stoltir af sínum manni, sem sleit meirihlutasamstarfi við sjálfstæðismenn og stakk þá svona frábærlega í bakið. Sprengdi borgarstjórn einsamall í fyrsta skipti í sögu Reykjavíkurborgar. Til hamingju Björn, þetta var rosalega þroskað. Samt talar fólk um það að Björn hafi, öfugt við Vilhjálm, bjargað sínum stjórnmálaferli. Er Björn virkilega sigurvegarinn í þessu öllu saman. Allavega sigurvegarinn í Björn vs. Vilhjálmur. Mikið eru Íslendingar furðulegir. Svo valsa vinstri grænir um og halda því fram að þeir séu eini flokkurinn sem kemur heill út úr þessu öllu saman. Já, finnst ykkur það? Núna eru þið orðnir eins og allir hinir. Reiðubúnir að taka völdin þó það þýði að þið farið ekki eftir ykkar sannfæringu og þurfið að kyngja ykkar skoðunum. Þá eruði flottari í stjórnarandstöðu.
Í hvað stefnir? Enginn veit, nýja borgarstjórnin fattaði það bara í kastljósinu í gærkvöldi að huga þyrfti að töluvert fleiri málum en hver á að stjórna hvar og málefni Orkuveitunnar. Fylgist bara spennt með og bíð eftir framhaldsmynd. Mun þessi borgarstjórn halda eða mun Svandís fylgja að lokum sinni sannfæringu og mynda nýja borgarstjórn með Sjálfstæðismönnum?
|
Vildi styðja samrunann aftur þó fundur yrði dæmdur ólöglegur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.10.2007 | 23:54
Jæja tölvan komin í gagnið...
já hún var sko biluð.. er ekki komin í lag, en hún er allavega komin í gagnið :) Ég hef hugsað mér að skrifa bók:
Hvað í /#)(")&/"&%/&%# á maður að gera þegar &#(&"%Ö"Ö$(#(/"#% tölvan bilar.
Það mundi þá vera handbók, örþunn á mannamáli. Þetta er nefninlega ekki svo einfalt mál fyrir suma. Ég er hluti af þeim hópi. Þannig er mál með vexti að fyrst þarf að finna einhvern til að laga tölvuna. En eins og núna er hún ekki beint biluð, bara virkar ekki sem skildi. Ég er búin að reyna að laga þetta með hugarorkunni, það virkar ekkert sérstaklega. Verð víst að láta sérfræðing kíkja á þetta.
Annars er mest lítið að frétta. Það er ekki enn komið sjónvarp inn á heimilið og ég er alsæl. Get einbeitt mér að því að sökkva mér í stærðfræðina. Verkfræðin tekur manni með opnum örmum og svoleiðis kæfir mann í skiladæmum og verkefnum. Bráðskemmtilegt alveg, mæli með þessu.
Mæli samt aðallega með heimsreisu:
Það eru nú liðnir tæpir 3 mánuðir síðan ég kom heim úr ferðinni í kringum heiminn. Mér líður hins vegar eins og það sé miklu lengra síðan ég fór í þessa ferð. Hún er orðin fjarlæg minning. Súrrealísk. Það er hálf ótrúlegt að ég skuli hafa upplifað öll þessi lönd, alla þessa staði. Vera í góðra vina hópi, alveg hreint ótrúlegum hópi þriggja vina og bara slaka á, fá sér einn kaldann fyrir svefninn. Heyra götulistamann spila á gítar í fjarlægð og drekka í sig töfra Suður - Ameríku. Sigrarnir voru margir og sætir; Andesfjöllin klifin eins og ekkert (það var reyndar meiriháttar mál) og fjórir dagar, þrjár nætur í hengirúmi í Amazonskóginum var meira en að segja það.
Það var því ekki að ástæðulausu a ég valdi "Heimskt er heimaalið lamb" sem uppáhalds málshátt í tölvunarfræðiverkefni í síðustu viku. Það var nú meira að demba því á mann í miðju tölvunarfræðiverkefni: Dulritaðu uppáhalds málsháttinn þinn og dulráddu hann aftur. Ég held að tölvunarfræðikennarinn hafi ekki alveg áttað sig á alvöru málsins þarna, að láta tugi nemenda ákveða það þarna á þessari stundu hver uppáhalds málshátturinn væri.
Jæja, vildi bara minna á mig og og lífga þetta blogg aðeins við. Það verður ekki eins langt í næstu færlsu :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)



eddaagn
ellikonn
ea
gudbergur
kolgrima
hrafnaspark
hrollvekjur

