Frekar undarlegt...

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvað þessir trukkabílstjórar eru að gera? Ég er algjörlega hætt að skilja þessa atburðarás, afhverju eru þeir að ráðast á lögregluna? Ég hefði haldið að það ætti frekar að blokka innkeyrslur forstjóra olíufélaganna í stað þess að hrella ríkisstjórnina. Vita þeir eitthvað hvað þeir eru að gera? Er það ekki samráð olíufélaganna sem gera bensínverðið svona fáránlegt (fyrir utan heimsmarkaðsverðið)? Hmmm eða er ég bara orðin kolrugluð? Það væri fínt ef einhver útskýrði fyrir mér hvað þeir vilja eiginlega að ríkisstjórnin geri, því skattur á eldsneyti er ekki mikill.

Hins vegar er ég frekar fúl yfir því að olíufélögin fengu ekki meiri refsingu fyrir samráð. Það getur enginn sannfært mig um það að þau stundi ekki samráð nú. Ég er algjörlega hætt að versla á bensínstöðvunum, bæði mat og bensín. Ég tek alltaf bensín í Atlas olíu, og finnst að þið ættuð öll að gera slíkt hið sama Smile Myndum samráð gegn samráði Wink

Gleðilegt sumar allir!

Reni á Þjóðarbókhlöðunni Joyful


mbl.is Sturla: „Ekki á okkar ábyrgð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Krummi

Já þetta eru undarlegir menn. Það er mjög erfitt að fá hjá þeim upplýsingar um hvað það er sem þeir vilja. Þeir segja bara: ,,við viljum að alþingismenn vakni og fari að vinna vinnuna sína´´ . Og gera hvað? Spyr maður. ,,Fari að vinna fyrir fólkið í landinu´´. Þetta eru bara vitleysingar. Svo halda þeir að þeir séu í einhverju stríði við lögguna.

Krummi, 25.4.2008 kl. 11:36

2 identicon

Það eru mjög margir sem hafa ekki hugmynd um það hverju bílstjórarnir eru að mótmæla svona yfir höfuð. Sumir halda jafnvel að þeir séu að fara fram á að virðisaukaskatturinn sé lækkaður á olíunni. Ég hef meira að segja lesið einhvers staðar að  atvinnubílstjórar greiði engan virðisaukaskatt af olíunni. Aðrir halda að þetta snúist um að stjórnvöld geti bara alls ekki stýrt heimsmarkaðsverði á olíu eða bensíni, vita greinilega ekki af þeim tekjum sem ríkisvaldið er að taka af hverjum keyptum lítra.  Það er eins og fólk hafi ekki fengið þær upplýsingar sem það þarf um þessi mál. Greinilega ekki mikið um að talsmenn bílstjóranna sé að skrifa greinar um þetta í blöðin eða tali almennt um það um hvað málið snýst.

Ég ætla svona rétt til þess að kynna þessi mál aðeins þó ekki sé nema á blogginu að það var í júlí 2005 sem sérstakt olíugjald eða skattur var sett á ólitaða olíu þessi skattur átti að koma í staðinn fyrir þungaskatt sem var fyrir það tímabil greiddur samkvæmt akstursmæli af öllum bílum sem keyrðu um á díselolíu.  Þegar þessi skattur var settur á olíuna þá hækkaði lítrinn af olíu um meira en helming. Samanber útreikninga sem ég fann eftir einn reiknings spekúlant á netinu. Ég man ekki betur en að það hafi verið talað um að afnema algjörlega þungaskattinn af öllum bílum en það gilti greinilega ekki um stærri bíla s.s. vörubíla sem ennþá þurfa að láta lesa af akstursmælum bifreiðanna og borga 14 kr á hvern ekinn kílómetra, var áður 32 kr/km.  Annað sem bílstjórar eru að mótmæla eru svokölluð vökulög þar er verið að reyna að fá einhverjar undanþágur það er að segja fái ekki sektir þó eitthvað sé farið fram yfir lögbundinn hvíldar tíma þar sem ekki er alltaf hægt að stansa og taka hvíld þegar menn eru  uppi á miðri heiði.  Enda myndi ég persónulega halda að það gæti skapað stórhættu til dæmis í byl og hálku þar sem skyggni er lélegt að stórir trukkar væru staðsettir í vegkantinum.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 11:53

3 Smámynd: Renata Sigurbergsdóttir Blöndal

En er málið ekki einmitt að ríkisvaldið tekur svo lítið af keyptum lítra? Og fer sá peningur einmitt ekki í samgöngur?

Svo mundi ég nú bara leggja mig áður en ég færi upp á heiðina ;) en þeir hafa auðvita rétt til að mótmæla, en þetta er því miður orðið mjög kjánalegt.

Renata Sigurbergsdóttir Blöndal, 25.4.2008 kl. 12:25

4 identicon

Finnst þér rúmlega helmingur af hverju keyptu lítra lítil hluti?

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 12:59

5 identicon

Þessi rúmlega helmingur á reyndar við þegar þessi skattur var settur á af ríkisvaldinu árið 2005 en þarna er hann að reikna út kostnaðinn við eldsneytiskaup og þungaskatt á fólksbíl og pallbíl og hvernig það breytis við að fella niður þungaskattinn en taka þess í stað upp olíugjald.  Samanber síðuna sem ég benti á hérna í fyrstu færslunni.

Reksturskostnaður eftir breytingu
Breytingin sem verður 1. júlí 2005 felst í því að hætt verður að innheimta sérstakan þungaskatt af fólksbílum með dísilvél. Hingað til hefur hann verið innheimtur tvisvar á ári. Jafnframt verður lagður tollur á dísilolíu eins og nú er lagður á bensín þannig að verð hennar hækkar. Fyrir Opel Vectra dísil sem vegur 1252 kg er þungaskatturinn 122.216 kr. fyrir árið 2004. Í þessum útreikningi er miðað við 30 þúsund km akstur á ári. Stuðst er við mælda meðaleyðslu beggja bílanna, annars vegar 9 lítra af bensíni en hins vegar 6 lítra af dísilolíu. Lægsta verð á bensínlítra var hjá Orkunni í apríl 2004 kr, 93.40 en dísilolíu kr. 34.80. (20. janúar 2005 var þetta verð 97.10 kr. fyrir bensínlítrann en 44.20 fyrir lítra af dísilolíu). Gert er ráð fyrir að lítrinn af dísilolíu muni kosta um 8% minna en lítri af bensíni eftir breytinguna á miðju næsta ári. (síðan þetta var skrifað er komið í ljós að olíugjaldið verður 45 kr/lítra sem þýðir að ódýrasta dísilolían mun kosta 89.20 kr lítrinn miðað við verð hjá Orkunni 20/1/05 þ.e. 8,13% lægra verð en á bensíni. Við þetta má bæta að 28. janúar 2005 var verð á dísilolíu í Svíþjóð 8,08% lægra en á bensíni (www.ok.se), í Danmörku 12,39% lægra (www.ok.dk) og í Noregi 11.06% lægra (www.shell.no). Því hlýtur að teljast öruggt að útsöluverð lítra af á dísilolíu muni hækka sem nemur olíugjaldinu, þ.e. 45 kr. pr. lítra en ekki verði innheimtur virðisaukaskattur af olíugjaldinu frekar en gert var af þungaskatti dísilbíla - ef meiningin er að bæta virðisaukaskatti ofan á olíugjaldið myndi Ísland skera sig úr á meðal nágrannaþjóða með dýrari dísilolíu).

Núverandi reksturskostnaður, bensín/dísil miðað við 15 þús. km. (með dísilskatti)*

Fyrir breytingu 2004
Opel Vectra 1,8 16v GL Sedan, 85 ha bensín
1350 lítrar af bensíni á 93.40 = 126.090.-

Opel Vectra 1,7 TD, GL Sedan, 60 ha dísill
900 lítrar af dísilolíu á 34.80 = 31.320.-
Sérstakur þungaskattur = 122.216.-
Samtals: 153.536.-
Árlegur umframkostnaður af rekstri: kr. 27.446.-
* Miðað við að aðrir kostnaðarliðir séu þeir sömu.

Árlegur reksturskostnaður, bensín/dísil miðað við 10 þús. km. (án dísilskatts)

Eftir breytingu 2005
Opel Vectra 1,8 16v GL Sedan, 85 ha bensín
900 lítrar af bensíni á 93.40 = 84.060.-

Opel Vectra 1,7 TD, GL Sedan, 60 ha dísill
600 lítrar af dísilolíu á 86.00 = 51.600.-
Árlegur sparnaður af rekstri: kr. 32.460.-

Mismunandi hagkvæmni af breytingu
Miðað við þær gefnu forsendur sem hér eru lagðar til grunvallar munu þeir sem skipta úr bensínfólksbíl í dísilbíl spara umtalsverða peninga með lægri eldsneytiskostnaði. Hins vegar mun breytingin ekki reynast eins hagkvæm fyrir þá sem reka stærstu og öflugustu dísiljeppana en gera má ráð fyrir að margir þeirra eyði 25-30 lítrum af dísilolíu t.d. við drátt á stórum hestakerrum. Eldsneytiskostnaður dísiljeppanna getur því orðið verulegur. Hins vegar er í því efni ekki um neinn valkost að ræða því jafn stóra jeppa með bensínvél yrði enn dýrara að gera út í sams konar notkun. En lítum samt á dæmið miðað við 30 þúsund km. akstur á Ford F-250 með 7,3 lítra 185 ha PowerStroke. Bíllinn vegur 2000 kg og eyðir 20 lítrum á hundraðið. Þungaskatturinn er kr.147.609.-

Reksturskostnaður dísiljeppa/pikköpp miðað við 30 þús. km.

Fyrir breytingu (2004)
Ford F-250 185 ha PowerStroke 7,3 Pikköpp
6000 lítrar af dísilolíu á 34.80 = 208.800.-
Sérstakur þungaskattur = 147.609.-
Samtals: 356.409.-

Eftir breytingu (2005)
6000 lítrar af dísilolíu á 86.00 = 516.000
Samtals: 516.000.-
Árlegur umframkostnaður kr. 159.591.-

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 13:07

6 identicon

Þú ert flottur bloggari Renata!!

 Vildi lika koma því a framfæri hvad mér fannst kvenna bloggid thitt flott og vel skrifad..

Áfram Renata

Ingunn Eyjólfsdóttir (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband